Megavikudagar á domino's ;S

Vá hvað það er gott að fara í ræktina einstaka sinnum ;D maður verður svo hress og líður bara mikklu betur yfir höfuð. Ég ætla alltaf að vera dugleg og vakna snemma og mæta til að vera hress og kát yfir daginn ;D en neinei ég slekk á helv. vekjaraklukkunni og fer að sofa aftur, og sé svo eftir þvi að hafa ekki farið þegar að það er kominn tími til að vakna í skólann.
Ég skellti mér með guðmundu í ræktina í dag eftir skólann mætti reydar ekkert í skolann fyrr en 10:50 svaf yfir mig og missti af íslensku ;S en fór svo í tónlistarskolann og svo i hádegishlé ;D. En afþvi að ég var ekki á neinni leikæfingu og ekkert að vinna í dag hafði ég tíma til þess að fara í ljós og ræktina
! það var æði
.. Ég fór að vinna í gær, og það er víst megavika í gangi á Domino's núna, sem er æðislegt fyrir alla, nema þá sem eru að vinna þar! een það er reyndar leiðinlegt þegar að það er lítið að gera, een um helgar á megavikum guð hjálpi mér þá, ég sem er svo slow manneskja eitthvað heh og á mjög erfitt að einbeita mér undir svona álagi eins og á megavikum.. en maður reynir, og svo þegar að maður kemur heim þá bara svona fer ég að átta mig á þvi á ný hver ég er heh.. Á að vera á leikæfingu alla helgina og vinna.. þannig að ég held að ég geti nu ekki gert margt annað en það..
En jæja þetta líður hjá ;D og lika fint að hafa eitthvað að gera svona, leiðinlegt að hanga bara og gera ekki shit ;D en flestir dagar eru þannig hja mér, að ég kem heim í hálftíma og fer aftur i skolann og kem svo aftur heim í 30-40 min. nenni ekki að hanga uppí skóla, og gera eitthvað þannig að ég fer bara heim að éta.. og horfa á friends eða eitthvað horfa á eitthvað sniðugt ;D ég spara allavega ekki mikið bensín hjá mér að vera alltaf að skjótast á bílnum hja manni.. een það verður að hafa það bara !
Ætla nu bara að segja þetta gott í bili! .. segi sögur af mér seinna
bææh!;*
Komin tími á færslu :D
Ég er nuna í eyðu, eða hádegishléi, átti að fara í stærðfr. áðan en kennarinn kom ekki þannig að við fórum bara, það var samt ekkert um það að hun væri veik .. þannig kanski er það bara hópskróp á liðið =O ! .. allavega þá er félagsfr. kennarinn minn ekki heldur þannig að ég þarf ekki að mæta fyrr en kl. 14:40 i skolann =D oog ekki hvarta ég svosem! .. fór í söngtima í morgun, sem gekk bara vel ;P.
Helgin var rosa fín, á Föstudaginn tók ég þvi bara rólega, var með kósí kvöld, var bara heima með nammiskál og ís og horfði á friends. Því að ég þurfti að vakna kl. 10 á laugardags morguninn til þess að fara á leikæfingu. Svo á laugardaginn þá var ég lika bara heima, eitthvað var að vinna til hálf átta, en svo skrapp ég aðeins út, tók rúnt í bæjinn með auði, sigurjóni, ómari og kára.. og fór svo í eitthvað verzló party með auði sem var alveg ágætt f. utan það að ég þekkti eingann þarna ;D.. svo fórum við aftur uppá skaga í eitthvað smá teiti hja gaur sem að ég man ekki alveg hvað heitir..svo bara röllti ég með þórey og ómari niðrí skútu og reyna að redda fari heim.. þá kom einhver normaður og var að chatta við okkur ;D heh það er svo gaman að chatta við útlendinga.. svo loksins komst ég heim og fór þá bara að sofa !! =P svo mætti á leikæfingu kl. 12 um hádegið, átti reyndar að mæta kl. 10 um morguninn en sem betur fer var því breytt!! þvi að ég ætlaði ekki einu sinni að getað vaknað kl. 11. Svo var ég eginlega mest allann daginn niðrí bíóhöll á leiklistarfæfingum..það er frumsýning eftir 10 daga held ég =D í dag ..
Jáá! Svo voru mamma og pabbi að fara til Barcelona áðan =S hepping alltaf mér langar svo til útlanda.. en ég verð víst bara að bíða þangað til í sumar til að komast á krít.. það er að segja ef að ég kemst þangað.. ég er alltaf auralaus;( sem er ikke godt! Held bara að ég verði að fara að reyna að vinna eins og motherfucker eftir að ég er buin i leikritinu. Til að þjéna einhvern pening.
Jæja nenni ekki að blogga meira í bili ;) vá ég segi þetta alltaf en ég verð að vera duglegir.. hehe hef svosem alveg margt annað að gera heldur en að blogga, een ef maður ætlar að halda uppi blogg síðu verður maður að halda henni uppi ;D !! svoo ég verð að standa mig. Jæja við sjáumst :*
Miðvikudagur 30. Janúar :)
Þrítugasti dagurinn af janúar í dag. Janúar er búinn að vera svo roslega lengi að líða maður! ekki það að það skiðti einhverju máli, það er ekkert sérstakt á döfinni sem maður er að bíða eftir, bara alltaf sama lífið skólinn eins og hann gengur og gerist og svo vinnan!!
Allavega þá kom Hreiðar hingað á sunnudagskvöldið, keyrði hingað í ógeðslega veðrinu sem hefur undan gengið herna..oog fór svo aftur í gær =/! ég held að ég hitti hann ekkert aftur fyrr en i mars.. þegar að ingi litli fermist! oog ég ætla nátturlega vestur á aldrei fór ég suður það var rosa mikið æði í fyrra allavega ég og Elsa vorum nu skrutlegar een skemmtum okkur konunglega.
Ég er nu bara í eyðu nuna í skolanum, tja eða hádegis hléi, fór í tónlistarskolann i morgun, rosa gaman þar! svo er ég alveg að fara að komast í ástand til þess að skella mér í ræktina með Guðmundu, þar sem að hun er með einkaþjálfara og alless þá getur hun bara kennt mer á lóðin og svona.. get ekki beðið eftir því að koma mér í betra form! ég hef ekki neitt þol bara það að labba frá ozone og í nínu sem eru btw fatabúðir herna á skaganum, það er bara smá spotti á milli þeirra þá er ég bara í andköfum þegar að ég kem inn, sem er ekki gott ehh! er nu að fara í íþróttir á eftir þá kanski tekur maður solidð á oog svo í næstu viku ætla að byggja upp vöðvafjall! =D nini segi svona ég ætla bara að koma mér í form, þvi að það er ekkert um það í mínum líkama.
Ég var eitthvað að gramsa á netinu í gær á gömlum heimasíðum mínum, og fann gamlar myndir.. ætla að enda bloggfærsluna og gömlum og aulalegum myndum af mér og fleirum! ... svo við sjáumst bara ;*

við vorum svo "töff" :S




ég og bergþóra









![]() | ||

-Lára!;*
Fimmtudagur 24. Janúar!
Ég er nánst komin í sama leti haminn í að blogga og seinast, það.. ehh já það bara stein gleymdist. En ég bara vit ekki er ekki að standa mig inná köflum ;D en það er heldur ekkert alltaf eitthvað til að segja frá. Er nuna bara í eyðu i skolanum og tilvalinn timi til þess að blogga!
Það er svosem ekkert mikið að frétta af mér, ég held að veikindin min séu að lagast, eða allavega í áttina, þetta er sennilega ristilsbólga, tja eða þá að ég sé með ofnæmi fyrir hvítu hveiti eða eitthvað þannig allavega er ég alveg hætt að éta þetta rusl.. ét bara spelkt morgunkorn og svona holt ;D aalveg búin að breyta mataræðinu í smá tíma.. eins og kvöldið sem að ég fékk mér pulsu eða pitsu þegar að ég var að vinna close vakt á domino's þá asnaðist ég til að éta pitsu.. og ég svaf ekkert um nóttinu útaf verkjum! alveg ömó.
Veit svosem ekkert hvort að þetta sé pítsunni eða pulsunni að kenna sem að ég át.. verkirnir hætta samt ekki, éég verð bara að bíða og sjá ;D allavega fer ég ekki til læknis fyrr en að þetta versnar.. er komin með nóg af læknum í augnablikinu.
Hmm seinustu helgi var ég driver, og var eginlega eina edrú manneskjan á svæðinu, een alveg ágætt ég vaknaði allavega hress á laugardags morguninn =) Svo um kvöldið á laugardeginum voru bara kósí heit, ég og ingimundur vorum ein heima.. keypti bara nammi og leigði vidjó! og það var EKKI sniðugt hjá mér að éta nammi þvi að ég gat ekki hreyft mig úr verkjum um nóttina og morguninn eftir.. ! svo á sunnudeginum fór ég að vinna og var að vinna close vakt ;D sem var fint.. var samt að vinna alla seinustu helgi, vantar akkurat þessa vinnu! á valla krónu nuna.
Ég skrapp svo í plokkun og litun loksins í fyrradag, augabrúnirnar minar voru orðnar ógeðslegar maður .. er buin að tína plokkaranum minum, og gleymi alltaf að fara í apótekið að kaupa mér nýjann þannig að vá ég er svo ánægð með augabrúnirnar og svona nuna ;D þarf ekkert að mála mig það er heví þægilegt.
Ég ætlaði ekki að getað drullað mér á lappir í morgun til að mæta í skólann, var svo ógeðslega þreytt. Var að horfa á The green mile alveg til eitt eða eitthvað, það er svo góð mynd!! ég dýrka hana ;D en samt ógeðslega sorgleg ='(.
'Eg vit ekki hvað skal segja meira. Er að fara að hefja söngnám í tónlistarskolanum herna á skaganum á mánudaginn næsta;D það verður örugglega fint vona ég.. jáá! ég nenni eginlega ekki að blogga um neitt meira ætla bara að láta þetta gott heita í bili þannig Chou!;*
-Lára!;*
Mzblond.bloggar.is's back ;)
Þannig að sú síða verður bara höfð í bakhöndinni ef eitthvað bjátar á aftur í þessu blogg kerfi héddna. Jæja ég er bara í eyðu nuna, og fer svo aftur í umsjón kl. 10:50 og það eru nu rosa stuttir tímar, oog svo fer ég aftur heim í hádegishlé og aftur uppí skóla, fáránleg stundum þessi stundatafla mín þó svo að mér líst rosa vel á hana að mörgu leiti, en svona er þetta miðvikudaga og mánudaga, svona eyðu klausur inná milli þess þannig að ég er alltaf heim og uti skola og svo heim og útí skola. Gæti svo sem alveg verið að læra uppí skóla þess á milli, een geri það ekki heh.. fer frekar heim að horfa á sjónvarpið ! já eða blogga =) heh..
En allavega þá ætla ég að fara að breyta lúkkinu á þessari síðu, mér finnst þetta vera orðið smá þreytt =O. 'Eg er ekki ennþá búin að vita útúr hvað kom útúr þessari ómskoðun sem að ég fór í, ætla bara í hringja í doktorinn í hádeginu. Svo fór ég í dansprufu í gær, að dansa rosa gaman ;D hmm.. ég er samt komin smá aftur úr í skólanum en ég verð örugglega fljót að ná því um ef að ég verð bara dugleg.. annars á ég eftir að gera svo mikið eitthvað, taka til í herberginu minu, taka fataskápinn minn í gegn og eitthvað, en ég ætla nu að taka lærdóminn fram yfir allt annað, eða flest annað kanski ekki alveg allt =P
Ætla nu bara að segja þetta gott í bili;) ;*
-Lára!;*
Þriðjudagur 15. Janúar
Neih hææ allir!
Þessi nýja síða fer að verða fín og flott..sakna samt rosalega mzblond.bloggar.is =( hun var orðin svo sæt hjá mér. Og sakna bara bloggar.is, þvi að mer finnst það nú vera betra kerfi en þetta. Tjaa þetta er fínt bara
!
Anyway, þá fór ég í ómskoðun í morgun og svona, ég þurfti reyndar að bíða roslega lengi ber að ofan inná íís jökulkaldri stofu liggjandi á bekk. Var að frjósa úr kulda, een loksins kom læknirinn og skoðaði mig og ég fæ ekki niðurstöðurnar fyrr en á morgun. Eða hinn, samt var þetta obbósleg dýr. Það er orðið svo dýrt að fara til lækna og tannlækna í dag, aaalveg fáránlegt sko, það er þá frekar að maður harki að sér tannpínu eða langtíma bundinn hausverk heldur en að fara til læknis, eða það liggur við sko, eða ég þarf nú reyndar ekki að kvarta ég borga ennþá bara barnagjald =D því að ég er ekki orðin 18 ára.
En vá manni hlakkar til og kvíður fyrir að verða 18. En jæja það eru kostir og ókostir við allt í lífinu og maður verður nú bara að sætta sig við það. Jæja allavega, þá kom ég við á subway á leiðinni heim af sjúkrahúsinu og kipti með mér einum subway bát, bara var orðin svo obbóslega hungry þvi að ég var buin að vera fastandi frá miðnætti og vaknaði kl. 8 i morgun. mátti ekki einu sinni drekka vatn eða neitt.
Hmm ég ætti nú að vera að gera eitthvað annað en að vera í tölvunni, t.d lesa laxdælu
sem er svo leiðinleg, það eru alltof mörg nöfn í henni og svo er þetta á svona fornmáli, ég er sko búin að reyna að lesa þetta og er komin soldið langt, en veit ekki ennþá hvað er í gangi í sögunni, ég bara hef ekki hugmynd um það sko. Jæja allavega meðan að ég er svona slöpp og allt það þá er bara best að ég slaki á .. ætla mér nú samt örugglega að fara í skólann á morgun. Langar ekki að dragast svona mikið aftur úr, það er bara vesen sko.
Sjáumst bara í næstu bloggfærslu ;*
-Lára!;*
Veikindi og fl. =(

Helló! ;D
Sunnudagurinn 13. Janúar bara genginn í garð. Þessi Janúar mánuður ætlar bara að fljúga áfram, en það er bara ágætt þá styttist í páskana og páskafríið og svoleiðis. Ég hef reyndar ekki getað mætt í skólann tvo daga, eða fór heim úr skólanum á fimmtudaginn, en mætti þó á föstudaginn. En það er ástæða fyrir því ég hef verið svo obboslega lasin =( ekki með flensu eða neitt þannig heldur ristilbólgu, eða eitthvað í gallblöðrunni veit ekki hvað þetta er, samt er ég alltaf hjá læknum, var t.d í gær þá var ég þarna á sjúkrahúsinu á skurðdeildinni allann daginn þurfti að fara sem snarast um morguninn þvi að verkirnir voru all svakalegir svoo sáárt =S
Ég var í gær uppí rúmi i sjúkrahús fötum og horfti á þrjár bíómyndir á bíórásinni heh, og það komu fleiri fleiri læknar að skoða mig, en ég fer samt í ómskoðun á þriðjudaginn hja meltingarsérfræðingi eða eitthvað þannig og þá fæ ég nu að vita pottþétt hvað þetta mun vera. Verð bara að slaka á þangað til ;D
Á miðvikudaginn, fimmtudaginn og föstudaginn þá fór ég á leiklistarnámskeið fyrir fva leikritið. Það var rosalega gaman allt saman.. svo á föstudag voru dansprufur en ég gat nu ekki mikið dansað þvi að jáhm ;S ég gat það bara ekki var með svo mikla verki, svo missti ég lika af söngprufu sem var á fimmtudaginn minnir mig, een ætla bara að reyna að komast í auka söngprufurnar á mánudaginn heh ekki það að það sé einhver sérgrein min að syngja, hef bara gaman af þvi;D svo akkuru ekki að prófa fara í prufur bara!
Jæja ætla að fara að læra, eeða horfa á neighbours eða eitthvað annað en að hanga i tölvunni, svo ég skrifa bara meira seinna - og lika verið dugleg að kvitta;) það ersvoo gaman að fá lítil og sæt comment frá öllum þó svo að það sé ekki nema þriggja orða settning baara svona kvitta f. lesninguna.eef það btw nennir einhver að lesa þetta bull sem kemur upp í kollinum á mér þegar að ég skrifa herna en allavega..Chou! :*
- Lára!;*
Íllu er best á lokið!
Een haldiði að ég sé ekki bara komin á nýjann kagga.. micran orðin stúin og lúin, en pabbi og Gunni fóru og sóttu hana í gær.. hehe þar sem að hún er búin að liggja eins og skata útí vegkannti í langann tíma.
En í gær Þá fór pabbi með mér á bílasöluna og keypti fínann bíl sem að ég má nota, takk æðislega pabbi ;* og mamma nátturlega heh! það er alveg ekki hægt að vera bíllaus þar sem að ég er alltaf í skólanum, og fara fram og til baka í vinnuna og svona, ég meina það labbar enginn svona vegalengd nema einhverjir sem eru í roosa formi, og það er eitthvað sem á ekki við um mig, ég er í svo oofsalega slæmu formi, ég er örugglega í svona formi á við broddgölt.. eða eru þeir ekki í lélegu formi annars.. ? guð ég veit ekki nuna er ég bara að bulla eitthvað.. een the point is ég er alls ekki í góðu formi líkamlega =) hehe allavega þegar að ég var fyrir vestan og var að hlaupa upp allar þessar tröppur heima hjá lóu og magga í blokkinni þá bara var maður aalveg búin þegar að maður var looksins komin upp þessa vegalengd !
Já.. það er rosalega frábært að vera komin á bíl, og lika það ég á heima smá útúr bænum þannig að það væri bara ekkert grín að rölta þessa vegalengd. Ekki það að maður hafi ekki gott af því svosem, en það er bara ennþá frábæra þegar að maður þarf ekki að labba.. ég fer bara í ræktina eða eitthvað þannig ef að ég vil hreyfa mig! dettur ekki í hug að labba til dæmis í vinnuna, það er aalveg í hinum endanum á bænum, og ég er svona 40 min ef ekki lengur bara örugglega næstum því klukkutíma að labba alla þessa spöl, ehh tja nii ;P
Skólinn byrjar vel bara, líst rosa vel á stundatöfluna mína bara eins og hun er nuna, allavega fæ ég að sofa út tvo daga í vikunni, a þriðjudögum og fimmtudögum, een ég er aldrei buin fyrr en rétt fyrir þrjú og fjögur á daginn.. sem er reyndar ekkert rosa slæmt, því að ég hef svosem ekkert annað að gera nema bara hugsa um lærdóminn, allavega áramóta heitið mitt er að standa mig í skólanum:) það þýðri bara ekkert annað ef að maður ætlar ekki að vera í þessu helvíti fram eftir öllum aldri, best að ljúka þessu bara af sem fyrst, það er að segja ef að maður ætlar að læra eitthvað, eða verða eitthvað.
Ég er svoo búin að reyna oog reyna að setja inn fullt fullt af myndum, sko fleiri frá jólunum og bubba tónleikunum og bílnum og svona, en það kemur alltaf eitthvað error kjaftæði aalveg sama í hvaða tölvu ég reyni að gera þetta.. ehm þannig að þetta er ekki bara talvan mín sem lætur svona! hélt það fyrst. En er buin samt að setja þetta allt inná myspace-ið mitt sem er www.myspace.com/90_model og þið sem eruð myspace vinir minir eða eitthvað þá getiði séð myndirnar bara strax.. en ætla samt að setja þær hingað inn líka, og ég get heldur ekki copy-að þær af myspace og hingað inná.. ég gat það nú samt um daginn, en ekki lengur =/ eitthvað rugl í gangi. Heyrð'annars ég nenni ekki að blogga meira í bili ætla að fara að kvíla mig, því að ég er með eitthvað ó,ó í ristinni minni =( það er alltaf einhver anskotinn að mér og ég fæ ekki tíma hja lækni nema á fimmtudaginn!! þannig að ég verð bara að þrauka þangað til þetta er aaalgert paain ógeðslega sárt =S jæja vildi bara deila þvi með ykkur hérna, heyrumst ;*
-Lára!;*
Bílinn.. Honday eitthvað man ekki :]!
Bubba tólnleikar og fl. ;D
Váá hvað það var ææðislegt á bubba tónleikunim í gæær =D hefði sko ekki viljað missa af þeim.. skellti mér með mömmu, og það var mjög fint bara. Fengum bubba boli og svona. Svo eftir Bubba tónleikana og stór hljómsveit Reykjarvikur þá fórum við aðeins í heimsókn hjá afa og ömmu heilsuðum uppá þau og svona ;D og kisuna mina ;D
Svo vorum við komin heim svona um eitt leitið, þá fór ég rúnt með Hafliða, Auði og sigurjóni, og við fórum leengst uppí sveit í party sem var alveg ágætt heitur pottur og svon. Jáhm það var bara fint, fórum samt heim voða seint, een komumst samt heim á endanum heh. Ég ætlaði ekki að geta sofnað, horfði smá á eina mynd í tölvunni minni sem að ég downlodaði, Superbad hun er rosa fin, eða horfði reyndar bara á smá af henni, þvi að ég var alveg að sofna þegar að klukkan var að ganga átta um morguninn. Vaknaði reyndar eld hress kl. hálf eitt eða eitthvað þannig og fór að vesenast eitthva...
Eða reyndar var þessi dagur bara roosalega rólegur, var ekki að gera neitt nema bara horfa á sjónvarpið, eða kláraði reyndar að horfa á superbad og svona, og date movie og eitthvað svoleiðiss, þangað til að ég fór að vinna kl. 6, keyrði á payero trukknum hans pabba i vinnuna ;D mér finnst reyndar gaman að keyr'ann bara :)! veit ekki afkverju.
Ooog svo er það bara skóli á morgun. Reyndar ekki kl. hálf níu, heldur byrjar kennslan ekkert fyrr en eftir hádegi, sem er fint sko.. bara sækja stundatöfluna fyrir hádegi milli níu og tólf.. þannig að ég ætla að fara að sofa bara bráðum, þvi að ég er nuna aalveg gjörsamlega buin að snúa sólahringnum við og það er ekki gott, er nefnilega ekkert buin að venja mig við að fara að sofa snemma og vakna snemma áður en að skolinn hefst, =/ tja een þetta venst allt við á endanum ;D - Já og svo ætla ég nú að setja inn fl. jólamyndir, og lika einhverjar af bubba tónleikunum við tókum nu nokkrar ;D vissum ekki að það mætti taka myndir þarna, eða allavega var einhver kona sem fór alltí einu að taka myndir tja þá gerðum við það bara líka. . . . Jæja ætla nu bara að láta þetta gott heita að sinni, veriði sæl ;);*
-Lára!;*


Áramót og fl. ;D
Já Gleðilegt nýtt ár gott fólk! 'Eg tók nú engar myndir um áramótin =( en Lóa tók einhverjar ég gat allavega stolið einni.. en er að setja inn myndir frá jólunum og svona hérna til hliðar =D þannig að ég var ekki að ljúga neinu um nýjar myndir heh.
En bara málið er það að myndavelin min er buin að vera í algeru rugli þannig að ég bara meika ekki að nota hana, nenni ekki að taka myndir á hana þvi hun er alltaf með svo mikið vesen ;D þannig aað ég er bara með myndar frá jólunum sem að ég stal af lóu systir, svo tók mamma líka einhverjar sem að ég stel og set hingað inná við tækifæri ;D
Jæja ég er buin að vera fyrir vestan síðustu níu daga, eða svona með deginum í dag var hjá hreiðari,en ég kom heim með flugi áðan.. ætlaði að taka fyrri vélina svo að ég kæmist nú í vinnuna svo að ég yrði nu ekki rekin eða eitthvað'. En vélin fór frá þingeyri og eitthvað rugl og ég fékk ekkert sms um það þannig að ég fór með seinni vélinni, sem að fór eitthvað yfir fjögur í loftið, pabbi sótti mig svo á flugvöllinn svo og við bruunuðum uppá skaga og beint á domino's, og ég mætti á mínútunni sex á staðinn ;D þannig að ég náði þessu alveg. Var svo að vinna til rúmlega átta eða eitthvað þannig =)
Jáhm áramótin fyrir vestan voru alveg ágæt, ég borðaði kalkún heima hjá hreiðari og famelíu ;D hann var mjög finn, svo fórum við á brennu, og sem betur fer keypti pabbi fyrir mig kuldaskó ;D og ég í snjóbuxur og læti enga gellu stæla í svona kulda það þýðir ekki neitt ;D en allavega svo var bara djammað, tja þau voru alveg ágæt, heyrðist samt á mörgum að þetta hafi ekkert verið séstök áramót, allavega gaman að vera buin að prófa að vera þarna á áramótunum =P var á skaganum i fyrra og það var bara mjög fint =) Já við skelltum okkur í nokkur party, og svo reyndum við nu að komast inná edinborg á ball þar een dyravörðurinn vissi vist hver ég væri og vildi ekki hleypa mér inn =( þannig að við fórum eitthvað annað bara =P
Svo var ég bara að hitta lóu, slaka á með hreiðari og rúnta og svona, fór tvisvar sinnum útí vík.. Bolungarvíkina að hitta Elsu fór einu sinni á rúntinn með henni og svona og svo röllta í klukkuðu veðri og eitthvað svoleiðiss það var bara rosa fint =) svo sótti hreiðar mig til hennar og við tjilluðum bara. Reyndar nuna er ég alveg buin að snúa sólahringnum við.. ekki gott, þvi að nuna fer alvaran að byrja .. skóli og vinna og svona, skólinn að byrja á mánudaginn og svo vinna a sunnudaginn og svona. Áramótaheitið mitt er allavega að standa mig í skólanum, safna pening fyrir ýmsu og spara og jáhm en aðallega bara að reyna að standast skólann fram í lok þessa skólaárs:].
Í gærkvöldi var ég bara heima hjá Lóu systir, kvaddi hana og svona áður en ég fór í flug.. eða þ.e.a.s í dag.. og solliss =) Og svoo er ég að fara á bubba tónleikana á morgun, ætla að skella mér með múttu =D það verður gaman.. örugglega alltaaf gaman að sjá hann bubba kallinnn syngja.
Jæja. Held að þetta sé gott í bili, ætla að klára að setja inn myndir og svona.. dudda aðeins í þessari síðu minni. Eigið góðar stundir og góða nótt;*
-Lára!;*



